Hér eru hugmyndir af því hvernig hægt er að spila BAK VIÐ TJÖLDIN

Hraðspilið 🎬

Þið spilið einn á móti einum - hver og einn fær 15 sek til að svara hverri spurningu til skiptis. Þið ákveðið fyrirfram hvað spilið á að taka langan tíma, t.d. 20-30 mín og sá sem svarar flestum spurningum rétt yfir þann tíma vinnur.

Liðakeppni 👥

Skiptið upp í lið, tveir til þrír í liði. Hvert lið fær 60 sek til að svara eins mörgum spurningum og þau geta. Þegar tíminn er búinn má hitt liðið stela síðasta svarinu ef þau geta. Tvö stig fyrir hvert rétt svar, eitt stig fyrir hvert stolið svar. Ákveðið fyrirfram hve oft hvert lið gerir.

Meistarahittingur 🏆

Einn leikmaður er "spurningameistarinn". Hann les spurningar fyrir alla hina sem fá 30 sek til að ná svari. 1 stig á hvert rétt svar, ef enginn hefur svarað rétt innan 30 sek fær spyrill 2 stig. Ákveðið fyrirfram í hve mörg stig þarf að fá til að spilið endi.

Endalausi spilarinn 🔄

Spurt er þar til leikmaður svarar rangt, þá er röðin komin að næsta. Sá sem nær lengstu runu af réttum svörum vinnur. Hægt að ákveða fyrirfram hve oft hver og einn má reyna við spurningarunu.

Spurningakvöldið 🎤

Einn les spurningar fyrir alla í einu og leikmenn skrifa svörin niður. Síðan skiptast leikmenn á blöðum og farið er yfir rétt og röng svör. Gott að velja fjölda spurninga í byrjun - til dæmis 10-20 spurningar (5-10 spjöld). Hægt er að keppa í liðum eða sem einstaklingur og skiptast á að vera spyrill ef þið viljið taka langt og gott spilakvöld.

Partýútgáfan 🍹

Hér skipta stigin ekki mestu máli heldur frekar húmor og stemning. Þið byrjið á því að hver og einn skrifar þrjár til fimm áskoranir á miða og setjið í skál (syngja, herma eftir kvikmyndalínu, segja fyndna staðreynd o.s.frv.) Í hvert sinn sem einhver svarar rangt þarf að draga áskorun.